
Mystery Shopping, eða hulduheimsóknir , gefa fyrirtækjum raunhæfa og óháða mynd af því hvernig staðan er á hverjum sölu- eða þjónustustað. Shopper (Hulda) fylgir fyrirfram skilgreindum fyrirmælum og metur þjónustu, söluframmistöðu og heildarupplifun á skýran og hlutlægan hátt. Niðurstöðurnar veita fyrirtækjum skýrar leiðir til umbóta sem skila sér í betri þjónustu og aukinni sölu.
afhverju Hulduheimsókn ?
Úr stórri rannsókn sem gerð var árið 2022 greindu fyrirtæki sem nýttu sér hugmyndafræði Mystery Shopping frá allt að 20% aukingu í sölu
MSPA Case Study
Tilgangur
Tilgangur verkefnisins er að greina skýrt hvar tækifæri liggja til að auka sölu (add-on-, cross- og up-sale), bæta þjónustu og styrkja viðskiptavildina.
Við skoðum sérstaklega hvernig starfsfólk:
- nýtir sölutækifæri
- leggur til viðbótarvörur og/eða þjónustu
- hámarkar hver viðskipti
Allar niðurstöður eru yfirfarnar og stilltar þannig að mælikvarðar og vægi endurspegli raunveruleg áhrif á rekstur. Þannig færð þú skýr og áreiðanleg verkfæri til að styðja við gæða- og sölustýringu innan fyrirtækisins.
Hvað er hægt að mæla?
Mystery Shopping nýtist öllum greinum þar sem þjónusta og sala skipta máli. Með yfir 20 ára reynslu sérsníðum við verkefnin að þínum rekstri með sérstakri áherslu á:
- viðbótarsölu (add-on-sales)
- þarfagreiningu og ráðgjöf
- þjónustuflæði og móttöku
- eftirfylgni og heildarupplifun
Af hverju að mæla?
Það sem ekki er mælt, er ekki bætt.
Mystery Shopping veitir hlutlæga mynd af þjónustu og söluframmistöðu. Sérstaklega hvernig tekist er á við viðbótarsölu og sölutækifæri í daglegum samskiptum við viðskiptavini.
Með reglulegum mælingum getur þú:
- aukið meðalviðskipti án þess að hækka launakostnað
- tryggt að sölutækifæri séu nýtt í hverju viðskiptasambandi
- minnkað bilið milli markmiða og raunverulegs árangurs
Niðurstaðan er einföld: betri þjónusta, meiri sala og sterkari rekstur.

Ferlið til að byrja að mæla!

Saman förum við yfir almenna hegðun viðskiptavina þinna og gerum skýra mynd af því hver eru markmið og gildi fyrirtækisins. Við ákveðum verklag, mælikvarða og vægi einstakra þátta.


Við aðlögum og setjum upp rafrænt heimasvæði fyrir fyrirtækið og framkvæmum formælingar til að finna út upphafsgildi. Við byrjun verkefnis eru allir starfsmenn sem koma að verkefninu upplýstir um verkefni, hvaða spurningar og vægi þeirra eru í mælikvörðunum, ásamt því að kynna niðurstöður úr formælingum, og hvað þurfi að bæta til að ná markmiðum fyrirtækisins.

Við yfirförum allar skýrslur til að tryggja að allir mælikvarðar séu rétt metnir og rétt framkvæmdir. Þegar verkefnið er komið í gang fá stjórnendur aðgang að skýrslunum í gegnum okkar stafræna miðil sem auðveldar þeim ákvörðunartöku að frekari umbótum í fyrirtækinu.

Verkefni í notkun verður verðmætara þar sem stöðug uppfærsla og endurskoðun er í gangi. Mælingarnar eru verkfæri til að fylgja eftir árangri, þjónustuupplifun viðskiptavina og tækifæri fyrir bætta sölutækni.